Já komiði sæl og blessuð, það er Gillarinn sem talar. Framundan er
skemmtileg ferð á vit óvissunnar, og eruð þið vinsamlegast beðin um
að festa sætisólarnar, slappa af og njóta ferðarinnar, takk
fyrir

.
Já ég sit hérna á sjálfan afmælisdaginn minn, það er að segja 12.
júní, og er ég orðinn alveg 23ja ára

... já þetta er fljótt að
líða maður.. en jæja...
ég ætla að byrja þetta ágrip á hvítasunnuhelginni, þar sem að ég
vare að vinna í partýi ársins einsog einhver sagði. Við vorum
fengnir til starfa við dyravörslu, ég, Sverrir Rúts og Fannar, í
afmæli hjá stórlaxinum Óskari Guðjóni sem var fertugr kallinn. Við
dyraverðirnir vorum klæddir upp í smóking og pípuhatta og svo að
sjálfsögðu með silkihanska.
Þetta kvöld var frekar skemmtun fyrir mig frekar en vinna og ekki
var verra að við vorum að fá borgað fyrir. Einnig fengum við að
borða þennan líka flotta mat og svo máttum við drekka eins og við
gátum í okkur látið. Veislan byrjaði svona einsog svona afmæli
byrja, sagðar sögur af afmælisbarninu og þar fram eftir götunum,
svo var að sjálfsögðu ball á eftir, og var það ekki af verri
endanum get ég sagt ykkur!
Fyrstir stigu á stokk Eyjólfur Kristjánsson og hljómsveit og sviku
engan, svo þegar að þeir tóku sér pásu, þá var ekkert hent disk í
spilarann einsog er alltaf gert,neinei þá mætti Herbert Guðmundsson
og hélt fólkinu heitu með flottu showi... svo var komið að
rúsínunni í pylsuendanum, á eftir Hebba var það enginn annar en
prinsinn sjálfur Stefán Hilmarsson sem tryllti lýðinn ásamt Eyfa og
bandinu, þá settist nú strákurinn niður við eitt borðið og skellti
í sig köldum á meðan að ljúfu tónarnir flugu um salinn...
Og þá að öðru Sjómannahelgin, hún byrjaði vel á fimmtudeginum en þá
lá leiðin uppí breiðholt með Hvíta Hernum á leik ÍR og Reynis.
Stemmningin á pöllunum var góð og leikurinn endaði með markalausu
jafntefli. Þaðan lá leiðin á Kofa Tómasar frænda, með Svenna og
Rúnka, að hitta Öddu og Sólveigu

.
Á föstudagskvöldið var svo grill hjá FC-Kajak og bjórþamb með
meiru. Þar ákváðum við að slá í lið í róðrakeppnina á
sjómannadaginn, ég, Ísar, Gilli Fowler Geiri og Binni. Ég var ekki
á djammskónum þetta kvöldið þannig að ég fór bara heim um 2 leytið
en strákarnir fóru í Grindavík og skemmtu sér flestir vel þar.
Á laugardagskvöldið var svo grill og bjór hjá
Piparsveinaklúbbnum þar sem að einn nýr meðlimur var tekinn inn,
Davíð Benonýsson.
Eftir mikið þamb af öli og fleiru var haldið á Mammamía á smá
tjútt, þaðan lá leiðin mín í Keflavíkina á Hápunktinn og dansaði ég
þar af mér alveg örugglega 5 kíló, þaðan fór ég í partý hjá Jóhönnu
sem ég hefði alveg eins getað sleppt... endaði svo kvoldið klukkan
eitthvað um 8 að mig minnir heima hjá Fannson, með Binna og 2
eiturheitum stelpum

....Vaknaði svo eftir nokkurra tíma svefn
og þurfti að fara að skutla stelpunum í kef og svo var gamanið að
fara að byrja, róðrakeppnin og koddaslagur.
Ég og Binni mættum saman á bryggjuna tilbúnir í slaginn

.Við vorum
í fyrsta holli og mættum við sterku liða "frændanna" en það var
ekki að spyrja að því, við rúlluðum þeim upp og stóðum uppi sem
sigurvegarar

með tímann 52:29 að mig minnir og annað sætið
tóku Reynismennirnir.
Næst á dagskrá var koddaslagurinn, þar sem að ég mætti Halla Valla
í úrslitaviðureign og eftir nokkuð strögl fórum við saman í sjóinn
og skiptum því fyrsta sætinu bróðurlega á milli okkar þetta
árið.
Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, ætla að fara
og eiga afmæli bara

Gilli kveður!