heaven is a place on earth
Ekki hugsa, dansaðu!
Það hafa orðið nokkrar breytingar í mínu lífa frá síðustu færslu og
ætla ég ekki að fara að tíunda það, stikla bara svona á
Þetta svona er það allra helsta, svo er ég að fara á morgun að
kaupa mér annan bíl,get bara ekki átt færri bíla en 3 :D neinei, nú
Ég er eiginlega hættur að djamma, býst við því að það sé bara
gangur lífsins að menn vaxi upp úr þessu. Er samt á leiðinni á
djammið í henni Reykjavík næstu helgi, og stefnan er tekin á
Sæolon, þar sem að Magni minn er að fara að haldu uppá afmælið sitt
:D Kallinn nennir engu veseni sambandi við skutl og svona, þannig
María og Ari eru flutt úr gamla Setbergi, maður vaknar ekki lengur
við það að Kara Petra eða Róbert Páll reyna að draga mann
framúr...get ekki sagt annað en maður sakni þess...jæja...þeim
Ég hef verið að velta ástinni svolítið fyrir mér undanfarið...Er
öllum ætlað að verða ástfangnir? Eða eru svona gaurar einsog ég sem
eigum eftir að enda einir í ellinni? Þetta kemur í ljós... Ég og
Svenni "Ladysman" er að fara að flytja til Danaveldis...aftur, og
er hann staðráðinn í því að koma ekki aftur, en hver veit, fyrir
en jájá...allavega það er enn líf hérna sunnan gatnamóta, ykkur er
Svona í lokin ætla ég að hafa smá getraun, og í verðlaun er kippa
af Carlsberg í gleri... Sá sem er fyrst/ur til að svara getrauninni
svohljóðandi: í hvaða mynd kemur nafnið Jimmy Gogolak upp nokkrum
Þybbinn sveitastrákur...
Já það hefur lítið verið bloggað hér uppá síðkastið og...tek ég það
alfarið á mig . Var að koma heim af smá djammi á mánudegi, og er
nokkuð sprækur. Fórum á Goldfinger og eyddum lltof miklum
peningum,:$ ég, Rúnki og PJ, en ég ætla ekki að tíunda það hér, þó
svo að ég hafi séð fallegasta stripparann sem að ég hef á ævi minni
Fórum á leikinn fyrr í kvöld þar sem að Afturelding(backlightning)
tók á móti Reyni(....)og var ekki að spyrja að leikslokum, en
lokatölur urðu 1-4, og að sjálfsögðu fyrir Reynismönnum!!:klikk:
Heyskapurinn er afstaðinn hér á Setbergi :(og var strákurinn allt í
öllu, en það er eiit af því allra skemmtilegasta sem að Gillarinn
tekur ssér fyrir hendur, að snúa á DeutZ D15 er það sem að gefur
lífinu gildi, einn með sjálfum sér útá túni og hugsa sínu þungu
þanka...hreinsar alveg hugann. Í huga mínum núna eru 3 manneskjur,
Brynjar Mar, Linda Sylvía og Ásthildur Kristín.....miss u.:haha: Já
næsta mál á dagskrá, hehehehe ónei...ég er ekki að nenna að skrifa
meira.... góða nótt og ég lofa...já lofa sko, það verður ekki jafn
Gillarinn kveður (og ég get sagt ykkur það að hann er laumu
Róðrameistarar
skemmtileg ferð á vit óvissunnar, og eruð þið vinsamlegast beðin um
að festa sætisólarnar, slappa af og njóta ferðarinnar, takk
Já ég sit hérna á sjálfan afmælisdaginn minn, það er að segja 12.
júní, og er ég orðinn alveg 23ja ára8|... já þetta er fljótt að
ég ætla að byrja þetta ágrip á hvítasunnuhelginni, þar sem að ég
vare að vinna í partýi ársins einsog einhver sagði. Við vorum
fengnir til starfa við dyravörslu, ég, Sverrir Rúts og Fannar, í
afmæli hjá stórlaxinum Óskari Guðjóni sem var fertugr kallinn. Við
dyraverðirnir vorum klæddir upp í smóking og pípuhatta og svo að
Þetta kvöld var frekar skemmtun fyrir mig frekar en vinna og ekki
var verra að við vorum að fá borgað fyrir. Einnig fengum við að
borða þennan líka flotta mat og svo máttum við drekka eins og við
gátum í okkur látið. Veislan byrjaði svona einsog svona afmæli
byrja, sagðar sögur af afmælisbarninu og þar fram eftir götunum,
svo var að sjálfsögðu ball á eftir, og var það ekki af verri
Fyrstir stigu á stokk Eyjólfur Kristjánsson og hljómsveit og sviku
engan, svo þegar að þeir tóku sér pásu, þá var ekkert hent disk í
spilarann einsog er alltaf gert,neinei þá mætti Herbert Guðmundsson
og hélt fólkinu heitu með flottu showi... svo var komið að
rúsínunni í pylsuendanum, á eftir Hebba var það enginn annar en
prinsinn sjálfur Stefán Hilmarsson sem tryllti lýðinn ásamt Eyfa og
bandinu, þá settist nú strákurinn niður við eitt borðið og skellti
Og þá að öðru Sjómannahelgin, hún byrjaði vel á fimmtudeginum en þá
lá leiðin uppí breiðholt með Hvíta Hernum á leik ÍR og Reynis.
Stemmningin á pöllunum var góð og leikurinn endaði með markalausu
jafntefli. Þaðan lá leiðin á Kofa Tómasar frænda, með Svenna og
Á föstudagskvöldið var svo grill hjá FC-Kajak og bjórþamb með
meiru. Þar ákváðum við að slá í lið í róðrakeppnina á
sjómannadaginn, ég, Ísar, Gilli Fowler Geiri og Binni. Ég var ekki
á djammskónum þetta kvöldið þannig að ég fór bara heim um 2 leytið
Piparsveinaklúbbnum þar sem að einn nýr meðlimur var tekinn inn,
Eftir mikið þamb af öli og fleiru var haldið á Mammamía á smá
tjútt, þaðan lá leiðin mín í Keflavíkina á Hápunktinn og dansaði ég
þar af mér alveg örugglega 5 kíló, þaðan fór ég í partý hjá Jóhönnu
sem ég hefði alveg eins getað sleppt... endaði svo kvoldið klukkan
eitthvað um 8 að mig minnir heima hjá Fannson, með Binna og 2
eiturheitum stelpum:lol:....Vaknaði svo eftir nokkurra tíma svefn
og þurfti að fara að skutla stelpunum í kef og svo var gamanið að
Ég og Binni mættum saman á bryggjuna tilbúnir í slaginn8|.Við vorum
í fyrsta holli og mættum við sterku liða "frændanna" en það var
ekki að spyrja að því, við rúlluðum þeim upp og stóðum uppi sem
sigurvegarar:klikk: með tímann 52:29 að mig minnir og annað sætið
Næst á dagskrá var koddaslagurinn, þar sem að ég mætti Halla Valla
í úrslitaviðureign og eftir nokkuð strögl fórum við saman í sjóinn
og skiptum því fyrsta sætinu bróðurlega á milli okkar þetta
Skammt stórra högga á milli!
lítið farið fyrir pistlum hjá Gillarannum uppá síðkastið... en
Sveitarstjórnarkosningarnar eru nýyfirstaðnar og fór það eins og
margan grunaði, meirihlutinn hélt velli, það er að segja k-og
Ég kíkti í Stapann á föstudaginn, eitthvað sem að ég hef ekki gert
í mörg ár... :) en það er skemmst frá því að segja að ég skemmti
mér bara konunglega þarna,:haha: kannski var það vegna þess að´það
var svo skemmtilegt fólk þarna á ferðinni með mér, þið takið þetta
Svörtum Fötum að spila sem var ekki til að skemma það...:klikk:
Næsta helgi lofar góðu, er að fara í einhverja óvissu á föstudaginn
:lol: og á laugardaginn er ég að fara að vinna í æfmæli. Við verðum
þar dyraverðirnir´, ég, Sverrir Rúts og Fannar, upp dressaðir í
til gamans geta að hljómsveitin sem að verður að spila er Stefán
Hilmarsson og hljómsveit, og er þetta einungis fyrir
hraðferð því að hún Adda mín er að koma í heimsókn og ég á eftir að
En jæja, ég lofa að það mun ekki líða eins langt á milli blogga hjá
mér elskurnar mínar ;) Heyrðu já hann næst þegar að þið sjáið hann
Rúnar að þá megið þið kyssa hann afþví að hann er algjör dúlla...;)
Gilli kveður og biður kærlega að heilsa í Grindavíkina til allra
þeirra sem að haqnn þekkir þar ;)
Sumarið er tíminn...
það, það er sko sumar í mínu hjarta! Það er kannski vegna þess að
þessi dagur er búinn að vera nokkuð góður, vaknaði klukkan korter í
2 og bara...shjitt, leikurinn er að byrja! dreif mig á lappir og á
klósettið og gerði það sem að menn gera yfirleitt þar þegar að þeir
vakna... mætti svo sirka 7 mín of sein á leikinn , sem að byrjaði
Það er nú ekki að spyrja að því að mínir menn tóku Aftureldingu á
bretti og sendu með flugi... leikurinn endaði 3-0 fyrir okkur
Svo lá leiðin á æfingu með FC-Kajak og já....síðasta æfing fyrir
leik, en tímabilið hefst á þriðjudaginn hjá okkur, fór svo í sund
með Fannsa, Svenna, Sunnu og Þórunni...eða sko, hún fór bara í
fótabað,:haha: treysti sér ekki oní vegna þess hve kallinn er
rosalega heitur og hún hefði bara átt erfitt með sig greyið...
Það sem að er annars að frétta af mér er svosem ekki merkilegt, var
að vinna sem dyravörður bæði laugardag og föstudag fyrir K-listann,
Það fjölgar alltaf í vinnunni, erum orðnir 7 að vinna hjá
kallinum... og það getur verið að það fjölgi meira, já þetta er
fljótt að breytast...man þegar að við vorum bara 2 ég og kallinn að
En hvað segiði góða fólk...eigum við ekki að njóta sumarsins í ár,
live our lives like every day is the last! allavega ætla ég að gera
það... laga Transann, kaupa mér Zodiac, fara erlendis... og já
Næsta helgi verður sennilega skemmtileg...Reynir á að spila á móti
Sindra á Höfn í Hornafirði, og erum við Stuðningsmannasveitin að
íhuga að gera okkur ferð þangað og standa við bakið á strákunum
okkar. Kannski verður tekið með sér öllari...kannski nokkrir en það
á allt eftir að koma í ljós. Þeir sem að hafa áhuga á því að koma
Gilli kveður....
Dagur í lífi drengs...
Fór í bústað í Hraunborgum á föstudaginn með Binna mínum og Helga,
Jing Jing, Drésa og svo var strákur sem að heitir Kalli frá
Byrjaði bara nokkuð vel, fengum okkur í glas þarna á föstudeginum
og já pottinn og grill og svona, föstudagurinn var bara svona
strákakvöld... Svo bilaði klósettið og þurfti að sturta niður með
því að fylla fötu og láta gossa í settið, og það fór alveg eftir
hvað menn voru að losa sig við í dolluna hvað það þurfti margar
fötur til að koma öllu niður... Svo daginn eftir semsagt á
laugardeginum að þá vakna ég líka þetta að deyja í maganum og var
með pípandi....og uppúr líka maður, hef sjaldan lent í öðru
Jebb þetta var spennandi og krefjandi laugardagur fyrir mig,:( og
Það þarf varla að spyrja að því að ég skellti mér bara heim um
kvöldið til að þurfa ekki að vera í einhverju veseni með eitthvað
fullt af fólki að hlusta á strákinn emjast á dollunni og sé ég
En það var samt gaman hjá okkur strákunum þarna, fer ekkert ofan af
Undanfarnir dagar eru búnir að vera erfiðir hjá Gillanum,mjög
erfiðir, sól og bongóblíða og strákurinn ekkert getað verið á
Transanum sínum...:cry: ekkert eðlilegt hvað manni hefur kitlað,
númerin liggja nefnilega inni og fer ég von bráðar að taka þau út.
Þá skal sko tekið á rúntaranum með kannski Topparann af og flott...
Bjórþambið er ég að hugsa um að minnka núna, er orðinn svo gamall
eitthvað. Maður er byrjaður að vakna skelþunnur stundum og er það
bara ákveðin skilaboð. Sú var nú tíðin að maður gat drukkið hvað
sem var og mikið af því og sama í hvaða ástandi maður endaði í, þá
vaknaði maður bara ferskur, skrýtið hvað þetta breytist þegar að
maður þroskast...Það væri nú gaman að rekna út hversu mikið maður
er búinn að drekka sirka um ævina...og peningarnir sem að hafa
Vitið þið hvað er mesta fall sem manneskja hefur lifað af án
Vulovic, flugfreyja, en DC-9 vélin sem að hún var um borð í sprakk
í loft upp. Hún lifði af en hlaut mörg beinbrot og var í dái í 27
jæja, lengra verður þetta ekki í bili, ég bíð bara eftir því að hún
jæja, Gilli kveður...
Hollywood...eða bara Sandgerði!
Ég veit eiginlega ekki hverju ég á að ljúga að ykkur núna, búinn að
liggja í þessari blessuðu flensu síðan um páskana :( en er svona að
Piparsveina klúbburinn var með matarboð hérna heima um daginn sem
heppnaðist alveg hreint með ágætum, þrátt fyrir nokkrar boðflennur
:) Rúnki Rosa kom með þennan líka feita humarinn maður og skelltum
við honum á grillið...ég hef aldrei séð jafn stórann og djúsí
humar... össh!! Þetta var svo mikill humar að við náðum ekki að
borða nærri allt, og var þetta því kærkominn morgunmatur fyrir mig,
Binna og Svenna eftir djammið...enduðum allir á brókunum inní
eldhúsi að skófla í okkur humar...allir löðrandi í feiti og
talandi um piparsveinaklúbbinn að þá erum við komnir með síðu sem
að ég kem til með að henda inní "tengla" hérna við hliðina.. :) en
Baldur Fannar Halldórsson og Heiða Rafnsdóttir voru að eignast
lítinn Balla :) eða Heiðar... hehe allavega til hamingju með
Baltasar Kormákur er búinn að finna paradísina... já hann er búinn
að vera hérna í Sandgerði undanfarið að taka upp kvikmynd, sem að
er ger eftir bókinni "Mýrin" eftri Arnald Indriða að ég held, og
Fannar er búinn að vera með annan fótinn inná tökustað núna
undanfarið, þar sem að hann náði að næla sér í eitthvað
Ég hef verið að velta fyrir mér uppá síðkastið... ástin, hún er
undarlegt fyrirbæri. Af hverju eru sumir heppnari en aðrir í ástum?
eða hefur heppni ekkert með þetta að gera? til dæmis ég, ég er ekki
heppinn í ástum, eða kannski er það ég sem að hef brennt allt undan
mér í þeim efnum vegna þess að ég er hræddur við það að hleypa
fólki nálægt mér...kannski hefur hjartað mitt orðið fyrir slíkum
bresti að það einfaldlega geti ekki elskað á ný? já maður veit
ekki, ég hef allavega tröllatrú á þessu stóra hjarta mínu... það
Pólitíkusar eru að tröllríða öllu um þessar mundir, og hef ég ekki
farið varhluta af því... stokkið á mann úr öllum hornum, enda
kosningar í nánd. Fréttabréfin streyma inn um lúgurnar þar sem að
allir eru á móti öllum og allir betri en hinir.. alveg er þetta
endalaus vitleysa... sérstaklega í svona litlu bæjarfélagi þar sem
að ALLIR þekkja ALLA og eru með skíkast úti allt og alla... sem
betur fer eru ekki allir svona, en mjög margir. Þessar kosningar
hafa ekki bara slæmt í för með sér, þetta lífgar uppá hinar ýmsu
umræður og mannlífið yfir höfuð. Það er sérstaklega Samfylkingin
hér í bæ sem að hefur eitthvað verið að gera í skemmtanadeildinni
fyrir okkur unga fólkið. Halda Bingó og ball svo eitthvað sé nefnt.
Annars er ég ekert búinn að ákveða hvað skal kjósa, þetta kemur
Fleiri mál á dagskrá?? ég veit ekki, ég held að ég sé þurrausinn
þetta kvöldið, nema að þið viljið bæta einhverju við?? nei einmitt,
Gilli out!
Bjórlaugur Þambal
hjartanu...hef svosem ekki frá mörgu merkilegu að segja, helgin var
bara svipuð og allar hinar, fór á djammið og svona man svona brot
og brot af laugardagsdjamminu... áttaði mig á einu svona ekki alveg
góðu í dag, ég heiti Gísli Jónatan og það er ekki það sem að ég
fattaði...heldur, sko til eru vísur um svona "aulabárða" það er að
segja Gísla, Eirík og Helga...og Kasper, Jasper og Jónatan...þetta
sló mig allt í einu í andlitið þegar að ég átti síst von á.... ætli
þetta hafi verið eitthvað planað?? Engu að síður að þá er ég MJÖG
stoltur af nafninu mínu, enda erum við bara 2 í heiminum sem að
heitum þessu nafni... Páskarnir verða einmanalegir hjá guttanum í
sveitinni, gamla settið úti í USA og flestir félagarnir að fara til
Spánar, en Gillarinn verður einn bara í köldum í pottinum,engin
spurning!! Já mér þykir ölið gott og mikið af því!! Neinei
Strákarnir í "Crew-inu" verða heima og verður bara ga
Má bjóða þér með á vit ævintýranna?
framan tölvuvélina... "sumarið er tíminn", já sá sem að orti þetta
og söng svo fallega hafði sko vit í kollinum... Þessi skítskuldi
sem að hefur verið hérna uppá síðkastið fær mann til þess að hugsa
Einmitt þegar að maður hélt að það væri farið að vora, hitinn
kominn uppí 2ja stafa og flott, neinei...þá bara kemur hörkugaddur
og leiðindi og Gillarinn búinn að pakka öllum vetrarfötunum
niður...nú voru góð ráð dýr...og ég er enn að reyna að átta mig á
ég er ekki frá því að ég sé orðinn nokkuð sprækur, búinn að stunda
pottinn grimmt síðustu daga og er það ekkert nema gott... nema
kannski með nuddið...það er alveg að gera feitt á sig... þessvegna
fer ég alltaf með Svenna mínum...við erum alveg óhræddir að nudda
Talandi um Svenna honum veitir ekki af ást og hlýju þessa dagana og
reyni ég að vera ekki langt undan...já hann var niðurdreginn
strákurinn í gær og er sennilega enn *stórt knús* Svenni
Helgin var bara alveg svona yfir meðallagi, lenti í einu sem að ég
á seint eftir að gleyma, og já þið giskuðuð á rétt...það var hann
Rúnki Roza, eða baróninn sem að tók smá flipp á þetta... eg er að
segja ykkur það, ég hef sjaldan ef ekki aldrei hlegið jafn ákaft á
Fórum á djammið, ég, Binni, Jón Karl, Fannar,Ástþór, Heiðrún og þar
voru nátturulega kallarnir í "crew-inu" Drési, Rúnki helgi og
allir... kíktum á Hápunktinn og gerðum svolítið öðruvísi...
settumst bara í koníaksstofuna og kikkuðum back þar...og já ég verð
Jói kallinn og hún Rósa eru víst búin að eignast 2 litlar
Glöggir lesendur hafa tekið eftir því að það var smá pakki í gangi
með síðasta blogg og létu viðbrögðin ekki á sér standa og þegar að
þetta er skrifað að þá er það hún Sædís sem að virðist vera að taka
þetta... allavega síðast þegar að ég gáði og er kluikkan núna
17:17... þannig að nema að einhver annar verði búinn að kommenta
áður en að þessi færsla dettur inn að þá er kippan af kófsveittum
Carlsberg á leiðinn vestur, og vil ég bara óska vinningshafanum til
hamingju með það! Þannig að Bjöggi minn, við verðum bara að hittast
Svo var ég að spá annað, hvað finnst fólki, á ég að hafa fleiri
svona "keppnir" eða á maður bara að sleppa því? allavega fannst mér
Jæja nú er ég hættur í bili, einni kippu fátækari, og á leiðinni í
sund. Gísli Jónatan kveður í bili... já með bros á vör , get ekki
Gilli out!
Dýrari týpan!!
Var góður á fös og bara gerði ekkert nema að fara í sund með
Vaknaði svo eiturferskur á lau morgunin kl 9:30 og dró Geira með
mér í Sund og ljós... svo lá leiðin í Stórborgina á ADIDAS
markaðinn hjá honum Júlla. Fórum saman ég, Svenni,Geiri og Hjörtur
og gerði ég reifarakaup alveg keypti mér legghlífar og
gervigrasskó... Svo vildi mannskapurinn fara á Makkann þann
óbjóðinsstað...já grýtti í mig þarna og sá eftir þessum níuhundruð
svo var aðaldæmið eftir... Herrakvöld Reynis, Byrjaði að sulla í
mig hjá Svenna og Fannari og var orðinn...já nokkuð góður bara um 8
leytið... Maturinn var geggjaður og bara hæfæf á það... svo var
eitthvað þarna ræðumaður og eikkað... svo kom að strippinu...ég hef
aldrei séð jafn djarfan strippara... önnur gellan tók Nasa litla og
gjörsamleg kláraði pakkann! tók gæjann ú ÖLLUM fötunum, og þarna
sat gæjinn á sprellanum útá miðju gólfi hahahahaha langbest..Svo
kom hin og tók aðeins á Gillaranum og það var svosem í lagi..´en ég
varð allur löðrandi í einhverri olíu í smettinu eftir greyið...og
það kom ekki úr klofinu á henni...en..þegar að upp var staðið að þá
Svo lá leiðin í Kef...og já... sem og fyrri daginn var það alveg
drep!! já ég er svo gjörsamlega kominn með ekki bara grænar heldur
Adda mín kom á laugardagskvöldið og tók mig smá rúnt... og já þeir
sem að muna eftir James Bond... licence to kill.... hún Adda mín er
með svoleiðis, allavega á hraðahindranir, held að hún hafi skafið
allar nema eina upp af götum Sandgerðis þetta kvöld...Hún er nú
farin til Flórída að kaupa eitthvað fallegt handa mér...eða svo
sagði hún allavega, ég veit nu hvernig þetta kvenfólk getur
Rúnki Roza er kominn með nýtt nafn í orðabókinni
jæja... þá er ég búinn í bili...ég og Sveinninn erum á leiðinni á
Mummy´s að vaska upp...já vaska upp...við lentum í smá dæmi...og
hei já... svo sá sem að verður með síðasta kommentið á þetta blogg
fyrir næsta blogg fær verðlaun... það er kippa af Carlsberg í
stórri dós... sko ég er að tala um sveittan bjór ekki við
stofuhita.... þannig að allir að taka þátt...það gæti orðið þú!
Gislinegger kveður í bili
Ég er þakinn leyndardómsfullum vökva...
Helgin er ný afstaðin og var hún alveg hrient ágæt bara, stendur
samt uppúr Andrés og Rúnki... Kíktum í partí í kef eftir djammið ég
og Dressmann og ég er að segja ykkur satt... ég var svo lang elstur
þarna ekkert nema 14-16 ára stelpur... og eitthvað af gaurum...ég
var ekki lengi að kalla á liðsauka, Fany Rúnka Roza og Dabba, þeir
mættu og redduðu stráknum... Það var samt lang best þegar Rúnki
stóð upp þegar að við vorum að fara... hrundi heill hellingur af
snakki úr jakkanum hans og gæjinn sem að átti heima þarna stóð bara
alveg.... ehhh... og rjóminn að kokkast í örbylgjunni hehehehe 15
Já Liverpool er dottið útur meistaradeildinni, og ég barasta verð
að kyngja því, nú er bara að bíða og sjá hvort að Arsenal taki
Kallinn er byrjaður að vinna aftur og ég bara get ekki sagt annað
en að mig hlakkar bara til að vakna á morgnana og mæta í vinnu...
Asgeir og Davíð reyta af sér þarna í hvert sinn sem að menn setjast
já ég veit ekki hverju ég á að ljúga að ykkur meira í bili... ætla
Boombastic!
ég er að eldast....en ég neita að þroskast!
eitt stykki læri fyrir okkur og Haffa Vidda og Halla, það rann
Byrjuðum á því að kíkja til Vidda að skella í okkur,. og ég er að
segja ykkur það, hundurinn hans þarf að fara á rítalín!! shjitt! ég
hef aldrei séð jafn ofvirkan jafnvel geðveikan hund!! Jæja held
samt að allflestir hafi sloppið lifandi þaðan út. Kíktum á mummy´s
þar sem að "Summer of Gilli Páls" var terkinn og ekki vantaði
kallinn á gólfið þá, tók svona "Sódóma" á þetta, lokaði bara
augunum og dansaði með sjálfum mér... og reyndar Rúnari og
Svo lá leiðin í kef og ég ætti ekkert að vera að eyða orðum í
það... ég veit ekki hvað það er , er það ég, eða er djammið orðið
þeta var alveg drep í einu orði sagt. Nú ætla ég bara að fara að
stofna fjölskyldu og koma mér vel fyrir. Er einhver kvenkyns
tilbúin að bjóða sig fram í starfið? Endilega að hafa samband...
Það er ekki laust við það að kallinn hafi tekið smá lit þarna í
Hólminum, enda var hitabylgja sem að gekk yfir þarna um daginn.
Rúnar Gissurarson er búinn að láta rýja sig, og kallin er ekkert
sínum, sumir geta svarið að hann er að kíkja á hana Helgu... er
FC-Kajak reið ekki feitum hesti frá firmamótinu sem að haldið var í
gær, enduðum í 4 og neðsta sæti. í liðinu voru, ég Gilli, Viddi,
Haffi,Halli Magg og Geiri. vorum langt í frá slakasta liðið, þetta
bara féll svona og ekki var dómarinn að hjálpa okkur, það er
kannski erfitt að dæma blindur á öðru og sjá ekkert með hinu og
vera heyrnarlaus í þokkabót, en þetta var maðurinn sem að fenginn
og svo svona í lokin vil ég óska henni Ásu minni til hamingju með
litlu prinsessuna eða Fannsínu einsog ónefndur maður kallaði hana.
"ég stend á skýi"
Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn...
Vikan er búin að vera viðburðarík hjá mér, og allt gott um það að
segja. Herbergisfélagi minn í Hólminum er þetta líka ruglaður og
það er bara gaman að honum, hann heitir Aron og er '83 módel og
kemur úr Grindavík. Hann er hrókur alls fagnaðar þarna uppfrá og
gerir dvölina þarna mun skemmtilegri. Við skelltum okkur í ljós
þarna um daginn og ég aldrei á ævinni farið i ljós, og hann alveg,
"blessaður þú verður að taka tvöfaldan tíma", ég tek það fram að,
þetta eru einhverjir Turbo bekkir, og það var einsog við manninn
mælt, Gillarinn var RAUÐglóandi næstu 2 daga!! og ég er enn
eldrauður á bringunni...já, það kostar víst sitt að viðhalda
Kallinn er allur að koma til og ég sé bara ekki fram á annað en að
kallinn verði klár í slaginn í vinnuna innan skamms, loksins....
Þú getur ekki breytt því sem að skeði í gær, en þú getur haft áhrif
Heyrst hefur að Stebbi "Lalas" hafi farið í brúnkuklefa og litað á
Já, Sveinn "hinn fagri" eða "Butcherinn" einsog sumir kalla hann,
Sveinn Vilhjálmsson O'Connor er mættur á klakann. Gillarinn tók á
móti snáðanum í leifsstöð um 3 leytið í gær og ég get alvag sagt
það án þess að skammast mín fyrir það...það var eitthvað innra með
mér sem að tók kipp... Kallarnir tóku smá "hafnargötu" og ekki leið
á löngu þangað til að Svenni sagði, "eigum við að kíkja á Boggan?"
og ekki var maður nú að neita því, Gillarinn blæddi burger and
fries á Danann sem tók vel til matar síns... En Adam var ekki lengi
í Paradís, Svenni var á leið á árshátíð með Flugfisk á Selfossi og
átti að leggja af stað klukkan 4, þannig að maður er ekkert búinn
jæja, Gillarinn kveður bara í bili með brostið hjarta.....
Kveðja...
fyrir það nokkuð hress. Þetta verður stuut hjá okkur í dag þar sem
að ég hef ekkert alltof mikinn tíma, er nefnilega á leiðinni vestur
kíkti á djammið í gær og ég held bara að ég hafi sjaldan eða aldrei
En allavega ég ætla bara að kasta smá kveðju á ykkur sem að kíkið
hér inn, Drési, Rúnki, Hjalli fá allir extra kveðjur, alltof gaman
Jæja , ég er farinn og kem mjög líklega til með að vera ónettengdur
þessa vikuna, þannig að heyrumst um næstu helgi!! og nei, ég er
Gilli kveður....
ú-a just a little bit, ú-a little bit more
Það er víst föstudagur og það þýðir aðeins eitt... Næstu tvo daga
verð ég ekki einn með sjálfum mér, þar sem að flestir eru að fara í
Betra seint en aldrei, eins og maðurinn sagði, já kallið er komið.
Vinkona mín á Stykkishólmi hringdi síðdegis í gær og bauð mér í smá
heimsókn sem að ég slæ sko hendinni ekki á móti. Mæti galvaskur á
sunnudaginn og byrja svo nýja viku á því að fara í sund. Já ég væri
að ljúga ef að ég segðist ekki hlakka til, nú skal sko tekið á
Pardí hardí... já þið heyrðu það ... party skal það vera, taka
svona nett á því í tilefni þess að "butcherinn" á afmæli, en
"crew-ið" ætlar ekki að láta vanta sig á "kæjann", skellum í
"grímurnar" á okkur eins og við fáum borgað fyrir,íhaaa... Rúnki
mun allavega vera vera eitraður með einn kaldan í annari og annan í
hinni, ætlaði að meika þetta úber drykkjuspil, og man, ég get ekki
Andrés Magnús vill ekkert kannast við ungu dömuna sem að fannst í
bakgarðinum heima hjá honum, illa til fara og í annarlegu ástandi,
Hjálmar nokkur Ben er víst aðalplayerinn í Sandy um þessar mundir,
Gillarinn kveður bara í bili, sjáumst eldhress um helgina!!